05.07.2008 12:14:01 / mtcarlo
Í dag er 5.júlí 2008. Og samkvæmt dagatali Háskóla Íslands gerir það mig 30 ára gamlan. Það er nú svo sem ekkert til að skammast sín fyrir að ná þessum árafjölda ef tekið er tillit til þess sem ég hef komið í verk á þessum 30 árum. Ég fagna því þessum stóra áfanga og geng knarrreistur á fund komandi ára.
»
04.03.2007 21:30:54 / mtcarlo
Jæja eftir langt hlé ætla ég að taka til við að tvista. Það hefur
æði margt gerst síðan síðast og þar ber hæst sú yndislega staðreynd
að ég er að fá enn eina dásemdina. Hún Hugrún mín þessi kjarnakona
gengur með barn okkar og ber það bara vel.
»
07.11.2006 20:35:57 / mtcarlo
Er ekki tími til kominn að tengja söng einhver um árið. Er að fara
til Danmerkur á morgun með konunni minni, hún er nú samt að fara
svona meira sem leiðsögumaður fyrir mig því því hún hefur nú verið
í mörk Danskra oftar en tær og fingur telja. Það hefur svo
ótalmargt gerst síðan ég bloggaði síðast þannig að ég ætla að láta
það ógert að fjalla um það, horfi frekar fram á veginn í þessum
bloggmálum.
»
10.07.2006 17:26:32 / mtcarlo
Ég átti afmæli þann 5. júlí síðastliðinn og verður sá dagur lengi í
minnum hafður. Þetta er dagurinn sem ég áttaði mig á því að ég er
án efa einn dekraðasti karlfauskur sem til er á þessum aldri.
Dagurinn byrjaði á því að ég var vakinn með gjöfum frá konunum
mínum þeim Hugrúnu og Hallbjörgu, í pakkanum leyndist Sony Ericson
K 750i sími sem er fyrir þá sem ekki hafa hugmynd um típuheiti
alveg GEÐVEIKUR sími. Ég varð nú svolítið hissa því ég taldi mig
hafa fengið afmælisgjöf nokkrum dögum áður þegar ástin mín gaf mér
30GB Ipod. En svo uppúr hádeigi var brennt suður á bógin þar sem
beið mín draumabíllin sem Hugrún mín hafði samþykkt að kaupa
nokkrum dögum áður. Gengu þau kaup vel fyrir sig og eftir að hafa
snætt minn uppáhalds rétt og ónefndu veitingahúsi í Reykjavík var
ekið heim á leið. Var þessi afmælisdagur allur hinn yndislegasti og
eins áður kom fram, lengi í minnum hafður.
»
25.05.2006 19:40:06 / mtcarlo
Jæja þá.. Fékk smá skammir fyrir að slá of laust á bloggtrommuna
þannig að ég læt hér með undan. Það er ekki svo mikið það að ég
hafi ekki frá neinu að segja.. Þvert á móti þá er ég eiginlega of
upptekinn við allt annað, spila á böllum, moka snjó af sólpallinum,
spila á böllum, moka snjó af pallinum, spila á böllum, moka snjó af
pallinum, vorverkin, vinnan, nýja húsið, nýja sófasettið, moka snjó
af pallinum. Ég fer að herða mig dyggu aðdáendur.. Það er loforð.
»
08.04.2006 10:30:13 / mtcarlo
Birkir Rafn Gíslason heldur útskriftartónleika í hátíðarsal F.Í.H.
til húsa að Rauðagerði 28 þann 28. apríl n.k. klukkan 20:00. Birkir
er 25 ára gítarleikari frá Skagaströnd og hefur verið við nám í
F.Í.H. undanfarin 6 ár. Efnisskrá tónleikanna samanstendur af 8
lögum sem öll eru eftir Birki en texta samdi Ragnar Sólberg ásamt
öðrum. Birkir hefur víða komið við í gítarleik sínum, hann lék m.a.
með hinni goðsagnakenndu hljómsveit Lausum og Liðugum frá
Skagaströnd,einnig hefur hann leikið með Margréti Kristínu
Sigurðardóttir (Fabúlu). Birkir starfar sem kennari hjá Gítarskóla
Íslands með náminu ásamt því að leika undir hjá fjölda
tónlistamanna. Birkir mun á útskriftartónleikunum koma fram ásamt 9
manna hljómsveit skipuð virtu tónlistarfólki.
»
14.03.2006 21:11:31 / mtcarlo
Jæja þá hefur maður upp sína raust enn á ný. Það gengur allt sinn
yndislega vanagang hjá mér, ég átti mjög fjöruga helgi sem gaf mér
alveg nýja sýn á konuna mína. Ég sá hana nefninlega blindfulla í
fyrsta skipti eftir ansi fjörugt konukvöld að mér skilst. Ekki það
að ég hafi verið skárri á nokkurn hátt enda átti ég ekki minna
skemmtilegt karlakvöld með Hirti STÓR gítareiganda og Tóta þver og
langflautuleikara. Þar höfðum við jafnt áfengi sem og hljóðfæri um
hönd og gerðum við bjór og vodka jafn góð skil og laginu House Of
The King með Hollensku progrokk sveitinni Focus. Við skötuhjúin
hittumst svo vel við skál og hýr á brá á Hótel Dagsbrún þar sem
konukvöldið áðurnefnda var haldið. Ekki leið að löngu þar til
Bakkus gamli var farinn að þjarma helst til of mikið að kvinnu
minni og þá var ekkert annað í stöðunni en að skunda heim. Konan
mín og frænka hennar segja mér að ég sé að fara í fermingarveislu
um helgina og er það bara hið besta mál enda á ég eftir að hitta
svona 99% af ættingjum Hugrúnar sem er alveg til æpandi skammar.
Nóg í bili..... Jonni out
»
08.03.2006 20:15:06 / mtcarlo
Mér varð á og þungan dóm ég hlaut, ég villtist af réttri braut og
gleymdi að nefna Arnar minn í þessari upptalningu á þeim
stórkostlegu tónlistamönnum sem komu fram á áðurnefndum tónleikum.
Málið er það bara að þessi listi er bara copy paste af
skagaströnd.is þannig að það var ekki ég beint sem gleymdi þér
Arnar minn.... Það hefði aldrei gerst.
»
07.03.2006 19:29:54 / mtcarlo
Eins og glöggir lesendur bloggsins mín hafa eflaust séð þá er
kominn dágóður tími síðan síðasta færsla datt inn hjá mér. Það
hefur ýmislegt markvert gerst hjá mér síðan þá og af þeim fjölmörgu
hlutum þá stendur einn hæst. Ég hóf sambúð.....(sem er nú svo sem
ekkert nýtt fyrir durtinn mig) en nú tel ég mig geta gulltryggt það
að þetta verður mín síðasta, annars má ég hundur heita. Ég var svo
heppinn að finna mér konu sem skilur mig

gamall frasi ég veit,
ég veit, en það er alveg ótrúlegt að vera með stelpu sem finnst
nýji bassamagnarinn minn nánast jafn spennandi og mér finnst hann
vera. En til að gera langa sögu mjög stutta þá leikur lífið við mig
þessa dagana og er ekkert að fara að hætta því. Ég stóð fyrir
styrktartónleikum nú á dögunum ásamt vini mínum og vinnufélaga
honum Hirti Guðbjartsyni. Þeir tókust með eindæmum vel og við ásamt
heilum her tónlistafólks söfnuðum tæpum 240.000 kr til styrktar
konu sem berst við mjög alvarlegan sjúkdóm. Það kom mér á óvart
hvað allir voru jákvæðir fyrir því að taka þátt í þessu með okkur,
sumir komu alla leið af höfuðborgarsvæðinu til að spila 2-3 lög.
Eftirtaldir aðilar komu fram og stóðu sig eins og hetjur. Guðmundur
Jónsson úr Sálinni. Hjörtur Guðbjartsson. Hafþór Gylfason. Þórarinn
Grétarsson. Hans Birgir Högnason. Angela Basombrio. Birkir Rafn
Gíslason. Jón Ólafur Sigurjónsson. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Eygló Amelía Valdimarsdóttir. Þorvaldur Skaftason. Anna
Skaftadóttir. Viggó Brynjólfsson. Hljómsveitin Spor. Kirkjukór
Hólaneskirkju... Ég kveð í bili.
»
12.01.2006 23:29:15 / mtcarlo
Þetta er nú allt hálf skrítið þessa dagana, ég hlusta á útvarpið
þegar ég er í vinnunni svipað og meginþorri þjóðarinnar en geri það
nær eingöngu vegna tónlistarinnar. Ég á það til að gefa hamrinum og
steðjanum í eyranu á mér frí þegar allar umræður um þjóðmál og
pólitík fara fram á öldum ljósvakans en nú hafa sprottið upp tvær
umræður sem ég gat ekki látið fram hjá mér fara. Annarsvegar er það
þessi hroðalega umræða um þetta dagblað sem kallar sig DV. Mig
langar samt minnst að tjá mig um það hérna nema þá bara að vísa í
fyrirsögn þessa bloggs. Hitt málið aftur á móti er ég sko til í að
hripa nokkur orð um, þó ég kunni að eiga það á hættu að fá vini
mína Birki og Arnar á tröppurnar hjá mér hrópandi ókvæðisorð í minn
garð íklæddir lopapeysum og treflum, fúlskeggjaðir og durgslegir.
Það eru þessir gangnslausu tónleikar "Viltu verða náttúrulaus?"
Þarna voru samankomnir flestir þeir nútíma hippar sem Ísland hefur
uppá að bjóða og það var eflaust ekki eitt rakað klof í öllu húsinu
þegar þetta stóð sem hæst, tala nú ekki um öll andlitshárin sem
prýddu 99.5% karlpeningsins. Þarna tróðu upp mis gáfulegir
tónlistamenn sem gerðu mis mikið þessum málstað til hjálpar. Ég get
til dæmis ekki séð það að Einar Örn fyrrverandi Sykurmoli hafi gert
nokkuð þessu til bjargar með því að fara á svið og láta eins og
flogaveikissjúklingur í miðju kasti gargandi með hroðaverkið Ghost
Digital á bak við sig. En talandi um að koma þessum málstað til
bjargar þá sé ég það ekki alveg gerst, sama þó Elvis sjálfur kæmi í
höllina, djammandi með Bob Marley. Þetta fólk heimtar að láta
stöðva byggingu Kárahnjúkavirkjunnar sem er svona álíka líklegt og
að láta hætta við Hvalfjarðargöngin tæpum áratug eftir að þau voru
opnuð. Þetta fólk er bara veruleikafirrt, Af hverju voru þessir
tónleikar ekki haldnir áður en það var byrjað á þessu undir
yfirskriftinni "Ekki verða náttúrlaus". Ja maður spyr
sig.....................Koma svo Arnar og Birkir!!
»
30.12.2005 19:46:28 / mtcarlo
Jæja þá eru heilög jól langt liðin og og tæpt ár í að þau komi
aftur en það stoppar samt ekki stanslaus hátíðarhöld vegna hinna og
þessa stóratburða. Ég spilaði á fínu balli með Úlrik annan í jólum
í Kántrýbæ, það var hörku stuð og gleðin við völd. Svo er ég að
fara að spila ásamt honum Birki mínum í innflutningspartíi hjá
Jóhanni vin okkar sem var að versla sér eitt stk einbýli undir
sjálfan sig og vini og þá dugar ekkert annað en live tónlist í
innflutingspartíinu. Ég vill koma því á framfæri að ég er ekki
látinn eins og sumir kunna að halda vegna bloggleysis á þessari
ágætu síðu, ég er bara búin að vera í einhverju letikasti en því er
hér með lokið.
»
19.12.2005 20:41:50 / mtcarlo
Jæja já eftir smá skammir frá honum Arnari mínum ákvað ég að setja
nokkur orð hérna inn. Ég bíð spenntur eftir jólunum, mest megnis af
því að ég hlakka svo til að sjá svipinn á dóttur minni þegar hún
opnar jólagjöfina frá mér. Ég skrapp suður í sjúkheitin um helgina
og verslað alveg helling af jólagjöfum. Ég lenti í því að þurfa að
pakka inn 5 pökkum á þessu hryllilega pökkunarborði í kringlunni,
þar mátti ég hafa mig allan við að slást um skæri og límband við
ungar konur af Taílensku bergi brotnar. Og til að kóróna
kringluferðina komst ég að því að það er alveg sama hvert þú ert að
fara í þessu húmbúkki, þú ert alltaf að þvælast fyrir einhverjum.
En ég verð duglegri að skrifa nú á næstu dögum. Það er loforð.
»
10.12.2005 23:08:31 / mtcarlo
Baldur hafði nýlega krækt sér í nýja kærustu og eins og manna er
siður þá hafði hann þáð heimboð til foreldra hennar í mat. Hann
mætir stundvíslega, nýþveginn og strokinn til tengdó og er vísað
til borðs. Baldur tyllti sér við hlið tengdamömmu og ætlaði heldur
betur að mýkja hana með skjalli og fögrum fyrirheitum. Forrétturinn
var nýbúinn þegar kauði tekur eftir því að heimilishundurinn hafði
skriðið undir borðið og lá makindalega við borðfæturnar. Allt í
einu þarf Baldur svona heiftarlega að reka við, og verandi kurteis
maður með eindæmum gat hann ekki hugsað sér að láta það gossa, hann
herpir saman þjóhnappana og reynir að kvelja fretinn inn aftur, það
tókst ekki betur en svo að kvikindið sleppur út um samanherptar
rasskinnarnar með tilheyrandi hvell. Baldur eldroðnar en
tengdamamman hvæsir á hundinn " Snati, komdu þér undan borðinu"
hrópaði hún. Það hlakkaði í Baldri sem taldi sig vel sloppinn frá
þessum skandal. En um það leiti er aðalrétturinn var að klárast
fann hann að þarmarnir voru eitthvað að ókyrrast, hann hugsar með
sér að hann geti nú alveg leikið sama leikinn tvisvar og lætur smá
slatta seiðast út um rassgatið, tengdamamma hvæsir nú öðru sinni á
hundinn og segir "Snati!!! farðu undan borðinu" Baldur hugsar nú
með sér að nú sé lag á að klára þarmavesinið bara alveg og rekur
svona heiftarlega við að matborðið gjörsamlega nötraði. Tengdamömmu
var nú nóg boðið og barði í borðið og hrópaði "SNATI VILTU KOMA ÞÉR
UNDAN BORÐINU ÁÐUR EN BALDUR DRULLAR YFIR ÞIG"
»
07.12.2005 16:39:13 / mtcarlo
One evening, in a busy lounge in the deep south, a reindeer walked
in the door, bellied up to the bar and ordered a martini. Without
batting an eye, the bartender mixed and poured the drink, set it in
front of the reindeer, and accepted the twenty-dollar bill from the
reindeer's hoof. As he handed the reindeer some coins in change, he
said "You know, I think you're the first reindeer I've ever seen in
here." The reindeer looked hard at the hoofful of change and said
"Hmmmpf. Let me tell you something, buddy. At these fuckin' prices,
I'm the last reindeer you'll see in here."
»
06.12.2005 15:05:35 / mtcarlo
Vitringarnir 3 komu inní fjárhús þar María og Jósef voru með nýfætt
barn í jötunni. Einn vitringanna var frekar hár í loftinu og varð
fyrir því óláni að reka hausinn harkalega uppí loftið. Hann greip
um höfuð sér af sársauka og hrópaði upp yfir sig JESÚS KRISTUR. Þá
hvíslaði Jósef að Maríu, skrifaðu þetta niður, þetta er mikið betra
en Hilmar...
»
Síður:
1 2